Um FortySix Golf

Vefur gerður af kylfingi fyrir kylfinga sem vilja lækka forgjöfina.

Sagan

46-boltinn, merki FortySix Golf

Ég heiti Haukur Hilmarsson og er byrjandi í golfi. Þegar ég byrjaði að hanna þennan vef var forgjöfin mín 46, og þaðan kemur nafnið FortySix Golf.

Ég er ekki golfkennari. Ég átti hins vegar fullt af gögnum úr Garmin-úrinu og TrackMan-herminum og langaði að gera meira við þau. Mig langaði að vita hvar höggin töpuðust og hvað borgaði sig mest að æfa. Úr því varð þessi vefur.

Vefurinn er nú í lokaðri prófun með hópi félaga. Ábendingar þeirra móta hvernig hann þróast.

Hugmyndin er einföld: þín eigin gögn eiga að segja þér hvað þú átt að æfa næst, ekki almenn ráð.

Hvað gerir FortySix Golf öðruvísi?

Höfundarréttur og hugverk

FortySix Golf er hugverk Hauks Hilmarssonar. Það á við um nafnið FortySix Golf, merkið (46-boltann), hönnun og útlit vefsins, texta, myndir og aðferðirnar sem notaðar eru til að reikna ráðin.

© 2026 Haukur Hilmarsson. Allur réttur áskilinn.

Óheimilt er að afrita, dreifa eða nýta efni, hönnun eða aðferðir vefsins, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis eiganda.

Ljósmyndir á vefnum eru teknar af Hauki Hilmarssyni. Ráð í „Leiðsögn“ eru stuttar samantektir með tilvísun í Golf Distillery, sem á réttinn að upprunalega efninu. Garmin, Garmin Connect, TrackMan og GSPro eru vörumerki viðkomandi eigenda. FortySix Golf tengist þeim ekki.

Hafa samband

Ertu prófari? Notaðu hnappinn Ábending á vefnum. Annars má senda tölvupóst á support@fortysixgolf.com.