FORTYSIXGOLF
Drög til yfirlestrar
Skilmálar
Drög, síðast uppfærð 29. október 2026
Þessir skilmálar gilda um notkun á FortySix Golf (46golf.com) og golfúraforritinu. Með því að stofna aðgang samþykkirðu þá. Lestu líka persónuverndarstefnuna, sem segir hvernig farið er með gögnin þín.
Um þjónustuna
FortySix Golf er rekið af Hauki Hilmarssyni, Reykjanesbæ. Síðan er í prófun. Eiginleikar geta breyst, horfið eða bilað, og gögn geta þurft að endurreikna þegar kerfið er bætt. Ábendingar frá prófurum eru mjög vel þegnar.
Aðgangurinn þinn
- Þú þarft að vera að minnsta kosti 13 ára til að stofna aðgang og gefa upp rétt fæðingarár. Ef þú ert yngri en 18 ára þarf forráðamaður að samþykkja kaup á áskrift.
- Hver aðgangur er fyrir einn kylfing. Gefðu upp rétt netfang og haltu lykilorðinu fyrir þig.
- Þú berð ábyrgð á því sem gert er í aðganginum þínum. Ef þig grunar að einhver annar hafi komist inn, láttu okkur vita strax.
Verð
Þjónustan er ókeypis meðan hún er í prófun. Síðar verða í boði áskriftir gegn gjaldi. Við látum þig vita með góðum fyrirvara áður en gjaldtaka hefst, og þú greiðir aldrei neitt nema þú veljir það sjálf(ur).
Ráðin eru leiðsögn, ekki kennsla
- Ráð, kylfuval og æfingatillögur 46golf eru reiknuð úr gögnunum þínum og eiga að vísa þér í rétta átt. Þau koma ekki í stað kennslu hjá PGA-kennara, sem er alltaf besti kosturinn.
- GPS-vegalengdir eru áætlaðar og geta skeikað nokkrum metrum. Vallarkort geta verið ónákvæm eða úrelt.
- Þú berð sjálf(ur) ábyrgð á öryggi þínu og annarra á vellinum. Fylgstu með öðrum kylfingum, ekki horfa á símann þegar einhver er að slá og farðu eftir reglum vallarins og golfreglunum, líka um notkun síma og fjarlægðarmæla í keppni.
Hvað má ekki
- Reyna að komast í gögn annarra eða fram hjá öryggi síðunnar.
- Afrita vallarkort, teikningar eða gögn síðunnar í stórum stíl, sjálfvirkt eða til að nota annars staðar.
- Skrá vísvitandi röng gögn um velli eða nota síðuna til að skaða aðra.
Gögnin þín og framlag þitt til vallarkorta
Golfgögnin þín eru þín. Þú getur sótt þau eða látið eyða þeim hvenær sem er, eins og lýst er í persónuverndarstefnunni.
Ef þú samþykkir kortlagningu veitirðu FortySix Golf ótímabundinn og endurgjaldslausan rétt til að nota nafnlausar upplýsingar úr hringjunum þínum, til dæmis lendingarstaði upphafshögga, til að teikna og bæta vallarkort. Vallarkortin sem verða til eru hluti af FortySix Golf, en þau eru aldrei tengd þér.
Hugverk
Hönnun síðunnar, kóði, holuteikningar, vallarkort, nafnið FortySix Golf og merkið eru eign Hauks Hilmarssonar. Þú mátt nota síðuna og deila þínum eigin holuteikningum og niðurstöðum, en ekki afrita eða endurnýta síðuna eða hluta hennar í öðrum tilgangi án leyfis.
Golfúr
Úraforritið er prófunarútgáfa sem er sett upp handvirkt. Það getur hætt að virka við uppfærslur á úrinu og er ekki hluti af Connect IQ-versluninni. Hringir sem skráðir eru á úrið eru meðhöndlaðir eins og aðrir hringir.
Ábyrgð
Þjónustan er veitt eins og hún er. Við gerum okkar besta til að hún virki og gögnin séu örugg, en getum ekki ábyrgst að hún sé alltaf aðgengileg eða villulaus. Geymdu frumrit gagna sem skipta þig máli, til dæmis í Garmin. Ábyrgð FortySix Golf takmarkast við það sem lög leyfa. Ekkert í skilmálunum skerðir réttindi þín sem neytanda samkvæmt lögum.
Lokun aðgangs
Þú getur hætt hvenær sem er og beðið um að aðganginum og gögnunum sé eytt. Við getum lokað aðgangi sem brýtur gegn skilmálunum, og látum þig vita fyrst ef hægt er. Ef þjónustunni verður hætt færðu tækifæri til að sækja gögnin þín áður.
Breytingar á skilmálunum
Skilmálarnir geta breyst þegar þjónustan þróast. Við meiriháttar breytingar látum við þig vita á síðunni eða með tölvupósti áður en þær taka gildi. Ef þú heldur áfram að nota síðuna eftir það gilda nýju skilmálarnir.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningur sem ekki leysist í sátt fer fyrir Héraðsdóm Reykjaness.
Hafa samband
Spurningar um skilmálana sendirðu á support@fortysixgolf.com.
SkilmálarPersónuverndUm FortySix Golf
© 2026 Haukur Hilmarsson