Leiðbeiningar
Velkomin í prófun á FortySix Golf. Hér er það sem skiptir máli þegar þú byrjar, og hvernig síðurnar virka.
Áður en þú ferð á völlinn
- Settu þér lykilorð. Meira → Stillingar → Lykilorð. Lykilorðið sem þú fékkst er bara til að komast inn í fyrsta sinn.
- Veldu kylfurnar. Meira → Kylfurnar í pokanum. Ýttu á kylfurnar sem eru í pokanum þínum. Við mælum aðeins með kylfum sem þú átt.
- Fylltu inn Stillingar. Forgjöf (54 ef þú veist hana ekki), hvort þú ert rétthent(ur) eða örvhent(ur) og hvort þú spilar af teigum karla eða kvenna. Ýttu svo á Vista stillingar neðst.
- Settu 46golf á heimaskjáinn. iPhone: opnaðu 46golf.com í Safari, ýttu á Deila-táknið og veldu „Bæta á heimaskjá“. Android: opnaðu í Chrome, ýttu á ⋮ og veldu „Bæta við heimaskjá“. Þá opnast síðan eins og app.
- Leyfðu staðsetningu. Þegar síminn spyr hvort 46golf megi nota staðsetningu, svaraðu já. Annars mælast höggin ekki.
Á vellinum, skref fyrir skref
1. Byrjaðu leikinn
- Ýttu á Spila neðst á skjánum.
- Völlur: ef þú ert á vellinum spyr síminn „Ertu á …?“. Ýttu á Já, velja hann. Annars ýtirðu á Veldu völl og leitar.
- Teigar: veldu litinn sem þú spilar af.
- Holur: veldu 9 eða 18 holur, og fyrri eða seinni níu ef við á.
- Leikform: Punktar / forgjöf fyrir venjulegan hring. Höggleikur ef þú þarft að klára allar holur.
- Hvar er síminn? Í hendi eða vasa ef þú tekur símann upp við boltann. Í festingu á kerru ef síminn situr á kerrunni.
- Síminn skráir högg og kylfur með GPS. Viltu bara skorkort? Ýttu þá á Skrá aðeins skor, án GPS neðst.
- Ýttu á Byrja á holu 1.
Ætlarðu að skrá hring sem þú spilaðir í gær? Ýttu á Í dag efst og veldu daginn.
2. Skráðu höggin
Efst sérðu hve langt er á flötina (fremst, miðja og aftast). Fyrir neðan er mynd af holunni og hvar þú ert.
- Við stingum upp á kylfu. Hún er þegar valin. Viltu aðra? Ýttu á kylfuna sem þú ætlar að nota. Fleiri sýnir allar kylfurnar og Veit ekki ef þú manst það ekki.
- Ýttu á Skrá högg þar sem þú slærð:
- Sími í hendi: við boltann, rétt fyrir eða rétt eftir höggið.
- Sími á kerru: þegar kerran stendur hjá boltanum. Nokkrir metrar til eða frá skipta ekki máli.
- Teighögg: síminn notar teiginn sjálfur, svo það skiptir ekki máli hvar þú stendur.
- Gakktu að boltanum. Á leiðinni sérðu hve langt síðasta högg fór.
- Stundum stendur Prófaðu … við kylfu sem þú notar sjaldan. Það gerist bara þegar lengdin hentar og engar hættur eru framundan, svo 46golf læri hve langt þú slærð kylfuna. Viltu það ekki? Ýttu á aðra kylfu, eða taktu hakið af í Stillingum.
Bætir einu vítishöggi á holuna.
Tekur síðasta högg eða víti til baka.
Kemur ef þú ýtir á Skrá högg nálægt síðasta höggi. Í lagi ef þetta var nýtt högg (t.d. stutt vipp). Hætta við ef þú ýttir óvart, eða skiptir bara um kylfu: þá breytist síðasta högg í kylfuna sem þú valdir.
3. Á flötinni: púttin
- Þegar boltinn er kominn á flötina, ýttu á Á flöt · pútt síðar. Ekki skrá púttin sem högg.
- Púttaðu eins og venjulega. Síminn má vera í vasanum.
- Þegar boltinn er ofan í velurðu aðra hvora leiðina:
- Á myndinni af flötinni: ýttu fyrst þar sem holan var. Ýttu svo þar sem hvert pútt byrjaði, í réttri röð. Þá sérðu lengd hvers pútts.
- Bara fjöldi pútta: ýttu á töluna við Man ekki staðina (0, 1, 2, 3 eða 4+).
- Ýttu á Vista holu · … pútt. Þá kemur næsta hola.
Ef flötin hefur ekki verið kortlögð er engin mynd. Veldu þá bara fjölda pútta.
4. Þegar hola gengur illa
Í punktakeppni látum við þig vita þegar holan getur ekki lengur gefið punkt. Þá máttu taka boltann upp. Það hefur engin áhrif á punktana eða forgjöfina og flýtir leiknum. Ýttu á Taka upp þegar þú sérð ábendinguna. Í höggleik kemur hún ekki.
5. Valmyndin ⋯ efst til hægri
Farðu beint á aðra holu, t.d. ef þú byrjaðir á 10. holu.
Ef þú hættir fyrr, t.d. eftir 9 holur.
Skiptir um ef þú tekur símann af kerrunni.
Sterkari litir sem sjást betur í sól.
Ef GPS virkar illa. Þá skráir þú bara kylfu og skor.
Hendir hringnum sem er í gangi. Notaðu þetta varlega.
6. Vistaðu hringinn
- Eftir síðustu holuna sérðu skorkortið: högg, pútt og víti á hverri holu.
- Er eitthvað vitlaust? Ýttu á holuna og lagaðu hana.
- Ýttu á Vista hring. Þú sérð hvað gekk vel og eitt sem má laga.
Hringurinn geymist í símanum á meðan þú spilar, líka þótt skjárinn læsist eða netið detti út. Ekki eyða síðunni úr símanum fyrr en hringurinn er vistaður.
7. Lagaðu hringinn eftir á
Skráðir þú högg óvart, eða lenti punktur á vitlausum stað? Það er auðvelt að laga.
- Opnaðu Hvernig gekk? á forsíðunni, eða Skoða holu fyrir holu eftir að þú vistaðir.
- Farðu á holuna og ýttu á Laga holu.
- Ýttu á högg til að velja það (á myndinni eða á hnöppunum „1 · Driver“, „2 · 7-járn“ …). Þá getur þú:
- Fært það: dregið punktinn á réttan stað, eða ýtt þangað sem hann á að vera.
- Eytt því: ýtt á Eyða höggi. Skorið á holunni lagast með.
- Skipt um kylfu: valið rétta kylfu í listanum.
- Ýttu á Vista holuna. Afturkalla og Hætta við eru til ef þú skiptir um skoðun.
Upprunalega skráningin glatast ekki. Sækja upprunalegu skráninguna setur holuna aftur eins og hún var á vellinum.
Ertu með Garmin-úr?
46golf er líka til á Garmin-úri (Approach S50, Venu Sq og Venu Sq 2), í prófun. Þá ýtirðu á hnapp á úrinu fyrir hvert högg og síminn má vera í vasanum. Viltu vera með? Hafðu samband við umsjónarmann, sem hjálpar þér að setja 46golf á úrið. Svo tengirðu úrið í Meira → Tengja úrið: hakaðu við kylfurnar sem úrið má mæla með og sláðu inn sex stafa kóðann sem úrið sýnir.
Ráð: svo skjárinn slokkni ekki
Síðan reynir að halda skjánum vakandi á meðan þú spilar. Ef síminn læsist samt (oft í orkusparnaði) skaltu stilla sjálfvirka læsingu á „Aldrei“ á meðan þú spilar. iPhone: Stillingar → Skjár og birta → Sjálfvirk læsing.
Hvað er hvað?
Forsíðan. Þaðan byrjar þú leik, æfir eða skoðar síðasta hring.
Skráir hring á vellinum, högg fyrir högg. Sjá leiðbeiningarnar hér fyrir ofan.
Markmiðið með öllu saman. Sýnir hve mörg högg á hring þú gætir sparað, hvar þau sparast (af teig, inn á flöt, við flötina eða í púttum) og æfinguna sem sparar mest.
Hringurinn holu fyrir holu: mynd af holunni með höggunum þínum, högg, pútt og punktar, og eitt stutt ráð. Flettu á milli hola með örvunum eða með því að strjúka. Fyrri hringir sýnir eldri hringi.
Undir Meira. Skoðaðu hverja holu áður en þú spilar: leikplan, par, lengd og þitt par. Á kortlögðum völlum sérðu brautarmynd með hættunum. Er völlurinn þinn ekki kortlagður? Ýttu á Já, kortleggið völlinn.
Ein æfing í einu, um tíu mínútur. Við veljum æfingu dagsins eftir því hvar þú tapar flestum höggum. Vikan sýnir hve oft þú hefur æft.
Ýttu á spurningu: hvaða kylfu tek ég, hvað á ég að æfa, hvernig gekk síðast, hvað slæ ég langt, og hvað golforð þýða.
Kylfurnar sem þú ert með. Síminn og úrið nota þær í ráðunum.
Forgjöf, hönd, teigar, heimavöllur, lykilorð og hakið Einfalt golf. Þar kveikir þú líka eða slekkur á ábendingum um að taka upp.
Hnappurinn neðst á síðunum. Segðu frá villum og hugmyndum. Síðan sem þú ert á fylgir sjálfkrafa með.
Viltu sjá meira?
Einfalt golf sýnir bara það sem þú þarft til að spila. Ef þú vilt sjá allar tölurnar, til dæmis lengd og dreifingu hverrar kylfu, hvar höggin tapast, brautarmyndir allra vallanna, Garmin, TrackMan og nákvæmar upplýsingar um kylfurnar (framleiðanda, skaft og sveigju), þá er það 46golf Pro. Gögnin þín eru þau sömu, og allt sem þú hefur skráð í Einföldu golfi fylgir með yfir í Pro.
Algengar spurningar
Ég gleymdi lykilorðinu
Hafðu samband við umsjónarmann FortySix Golf. Hann setur nýtt lykilorð fyrir þig.
Fjarlægðin stendur „GPS ónákvæmt“ eða „Leita að GPS…“
Bíddu smástund undir berum himni. Athugaðu líka að 46golf megi nota staðsetningu í stillingum símans.
Völlurinn minn er ekki á listanum
Veldu Völlurinn minn er ekki á listanum og skrifaðu nafnið. Þú getur spilað strax og ýtt bara á kylfuna sem þú notar. Ef þú vilt geturðu líka skráð par og lengd hverrar holu, svo við getum ráðlagt þér. Þá sendum við völlinn í yfirferð og bætum honum á listann fyrir alla.
Síðan lítur gamaldags út eða breytingar sjást ekki
Lokaðu síðunni alveg og opnaðu 46golf.com aftur. Í tölvu: Ctrl + Shift + R.
Eru gögnin mín örugg?
Já. Allt sem þú skráir er í læstum gagnagrunni sem aðeins þú hefur aðgang að, og fylgir þér á milli tækja. Þú getur sótt afrit af öllu í Stillingum → Gögnin mín.
Allar leiðbeiningarnar í einu skjali
Útgáfa 2.0 fyrir nördagolf: 42 síður með efnisyfirliti og myndum af síðum vefsins. Gott að prenta eða hafa í símanum.
Mikilvægt þegar þú byrjar
- Settu þér þitt eigið lykilorð
Farðu í Stillingar → Lykilorð og veldu lykilorð sem aðeins þú þekkir. Lykilorðið sem þú fékkst er bara til að komast inn í fyrsta sinn.
- Fylltu inn Stillingar
Forgjöf, hvort þú ert rétthent(ur) eða örvhent(ur), vallarmat karla eða kvenna, algengustu skekkjuna og heimavöllinn. Öll ráðin, líka á Völlunum, byggja á þessu.
- Komdu gögnunum inn
Áttu Garmin-úr eða notarðu TrackMan? Settu upp viðbótina í tölvunni (sjá neðar) og sæktu allt með einum smelli. Ekkert úr? Skráðu hringinn í símanum á Skrá hring.
- Settu síðuna á heimaskjá símans
iPhone: opnaðu 46golf.com í Safari, ýttu á Deila-táknið og veldu „Bæta á heimaskjá“. Android: opnaðu í Chrome, ýttu á ⋮ og veldu „Bæta við heimaskjá“. Þá opnast síðan eins og app.
- Þetta er prófunarútgáfa
Eitthvað getur bilað, og það er einmitt það sem við viljum vita. Ýttu á Ábending neðst á síðunni og segðu frá villum og hugmyndum. Síðan sem þú ert á fylgir sjálfkrafa með.
- Gögnin þín eru læst
Aðeins þú sérð hringina þína og æfingar. Nafn og Garmin-auðkenni eru ekki geymd. Höggpunktar hringjanna eru geymdir svo þú fáir kort og hitakort, og aðeins þú sérð þá. Þú getur eytt hring hvenær sem er á síðunni Gögnin og sótt afrit af öllu í Stillingum.
Kortlagning valla
Viltu hjálpa til við að kortleggja golfvelli fyrir GPS-síðuna? Þá eru hnit teiga, pinna og pútta úr Garmin-hringjunum þínum geymd læst og notuð nafnlaust til að finna flatir og teiga. Enginn annar sér hringina þína eða hvar þú varst. Þú getur slökkt hvenær sem er á síðunni Gögnin, og þá er hnitunum eytt.
Viðbótin: Garmin og TrackMan með einum smelli
Virkar í Chrome eða Edge í tölvu (ekki í síma). Þú setur hana upp einu sinni og það tekur um 3 mínútur. Smelltu á mynd til að sjá hana stærri.
Sæktu og afþjappaðu viðbótina
Sæktu viðbótina (zip-skrá). Opnaðu möppuna Downloads, hægrismelltu á
46golf_vidbot.zipog veldu Extract All… („Draga allt út“). Smelltu svo á Extract í glugganum sem opnast. Þá verður til mappan46golf_vidbot.
Skýringarmynd af Windows. Á Mac nægir að tvísmella á zip-skrána. Opnaðu viðbótasíðu vafrans
Skrifaðu
chrome://extensionsí veffangastikuna efst og ýttu á Enter. Í Edge skrifarðuedge://extensions.
Kveiktu á Developer mode
Smelltu á rofann Developer mode efst til hægri (í Edge er hann vinstra megin). Þá birtast þrír nýir hnappar.

Smelltu á Load unpacked og veldu möppuna
Smelltu á Load unpacked.

Veldu möppuna
46golf_vidbotí Downloads (1) og smelltu á Select Folder (2). Ekki opna möppuna, bara velja hana.
Skýringarmynd af Windows-glugganum. Nú birtist FortySix Golf í listanum. Viðbótin er komin inn.

Villa: „Manifest file is missing“? Þá valdirðu möppu sem er utan um réttu möppuna. Smelltu aftur á Load unpacked og veldu möppuna sem inniheldur skrána
manifest.json.Festu FortySix-táknið
Smelltu á púslbitann efst til hægri í vafranum (1) og svo á teiknibóluna við FortySix Golf (2).

Nú situr 46-boltinn alltaf efst í vafranum.

Sendu gögnin
Skráðu þig inn á Garmin Connect og/eða portal.trackmangolf.com í sama vafra. Smelltu svo á 46-táknið (1) og veldu Senda Garmin-hringi eða Senda TrackMan-gögn (2). Síðan Gögnin á 46golf.com opnast og segir hvað kom inn.

Ekki eyða möppunni eftir uppsetningu, því vafrinn les viðbótina úr henni. Ný útgáfa? Sæktu zip-skrána aftur, afþjappaðu hana í sömu möppu og smelltu á hringlaga örina á viðbótinni í chrome://extensions. Myndirnar eru úr Chrome á ensku. Edge lítur svipað út.
Síðurnar í stuttu máli
Golfið mitt
Staðan og skorkort síðustu hringja í litum: fugl, par, skolli. Flettu til hliðar til að sjá eldri hringi.
Skrá hring
Ýttu á kylfuna í hverju höggi, svo „Ofan í“. Hægt að klára eftir 9 holur. Seinna má bera skráninguna saman við Garmin og leiðrétta óþekktar kylfur.
Vellirnir
Holu fyrir holu: þitt par, ráðlögð spilun miðað við hvað þú slærð stöðugt, og eigin athugasemdir. Þú getur líka skráð nýjan völl, t.d. á Spáni.
Ráð
Ráðleggingar FortySix Golf. Þær hjálpa þér að velja kylfu, leik og leið, og þegar kennari getur hjálpað þér meira vísa þær þér á PGA-kennara. Þrjár áherslur eftir því hvar flest högg sparast. Þú velur hverja þú æfir og færð æfingu fyrir hermi og æfingasvæði.
Spara högg
Hvar höggin tapast, og til gamans: hvert forgjöfin gæti farið eftir 20 hringi eftir því hve mikið þú æfir.
Kylfurnar og Pokinn
Lengdir og dreifing hverrar kylfu úr Garmin-hringjunum, og hvaða kylfur eru í pokanum.
Æfingar og Hermir
Skráðu pútt- og chip-æfingar í símanum. Hermir sýnir TrackMan-loturnar þínar og hvað veldur skekkjunni.
Algengar spurningar
Ég gleymdi lykilorðinu
Hafðu samband við umsjónarmann FortySix Golf. Hann setur nýtt lykilorð fyrir þig.
Síðan lítur gamaldags út eða breytingar sjást ekki
Endurhlaðaðu síðuna. Í síma: lokaðu flipanum og opnaðu 46golf.com aftur.
Garmin-hringurinn kemur ekki inn
Athugaðu að þú sért innskráð(ur) á connect.garmin.com í sama vafra og smelltu aftur á „Senda Garmin-hringi“. Viðbótin sendir 20 hringi í einu, svo smelltu aftur ef fleiri eru eftir.
Ráðin virðast almenn eða röng
Athugaðu Stillingar (forgjöf, hönd, skekkja) og að nokkrir hringir séu komnir inn. Ráðin batna eftir því sem gögnin aukast. Ef eitthvað er augljóslega rangt, sendu ábendingu.
Get ég notað síðuna á golfvellinum?
Já, Skrá hring er gerð fyrir símann og vistar hverja holu jafnóðum. Ef netið dettur út skaltu ekki loka síðunni. Skráningin fer inn þegar sambandið kemur aftur.