FORTYSIXGOLF
Drög til yfirlestrar
Persónuverndarstefna
Drög, síðast uppfærð 29. október 2026
FortySix Golf hjálpar þér að spara högg. Til þess þarf síðan að geyma upplýsingar um golfið þitt: hringi, högg, kylfur og æfingar. Hér útskýrum við hvað er geymt, af hverju, hver sér það og hvernig þú getur fengið það afhent eða eytt.
Í stuttu máli: gögnin þín eru í læstum gagnagrunni þar sem aðeins þú sérð þau. Við seljum þau ekki, sýnum engar auglýsingar og fylgjumst ekki með þér á öðrum vefsíðum.
Hver ber ábyrgð á gögnunum
Ábyrgðaraðili er Haukur Hilmarsson, Reykjanesbæ, sem rekur FortySix Golf (46golf.com). Spurningar og beiðnir um gögnin þín sendirðu á support@fortysixgolf.com.
Hvaða upplýsingar eru geymdar
Aðgangurinn
- Netfang og lykilorð. Lykilorðið er geymt dulkóðað þannig að enginn, ekki heldur við, getur lesið það.
- Ef þú skráir þig inn með Google fáum við netfangið þitt frá Google ásamt nafni og prófílmynd. Netfangið er notað til innskráningar. Nafn og mynd eru geymd í innskráningarkerfinu en ekki notuð á síðunni.
Golfprófíllinn
- Nafn eða gælunafn sem þú velur að skrá, forgjöf og saga hennar, teigar (karla eða kvenna), hvort þú slærð með hægri eða vinstri, heimavöllur, markmið og stillingar.
- Fæðingarár. Það er notað til að ganga úr skugga um að þú hafir náð 13 ára aldri, til að vernda notendur yngri en 18 ára og til að flokka nafnlausa vallartölfræði eftir aldri.
- Kylfurnar í pokanum og upplýsingar sem þú skráir um þær.
Hringir og æfingar
- Hringir sem þú skráir í 46golf: skor, pútt, víti, kylfa í hverju höggi og GPS-staðsetning hvers höggs á vellinum.
- Hringir sem þú flytur inn úr Garmin. Garmin-skrár innihalda nafn þitt og Garmin-auðkenni, en þau eru ekki geymd, aðeins golfgögnin sjálf, þar á meðal staðsetning högganna.
- Æfingar: dagbók, mælingar úr TrackMan eða GSPro sem þú hleður upp, og GPS-æfingar.
- Ef þú tengir golfúr: tengikóði og tenging úrsins við aðganginn þinn.
Samskipti
- Ef þú sendir okkur línu gegnum síðuna: nafn, netfang, forgjöf, búnaður og skilaboðin.
- Tölvupóstar sem þú sendir á support@fortysixgolf.com.
Tæknilegar upplýsingar
- Við innskráningu og nýskráningu kannar Cloudflare Turnstile að þú sért ekki vélmenni. Til þess eru tæknilegar upplýsingar um vafrann og tenginguna skoðaðar.
- Í símanum eða tölvunni þinni eru geymdar stillingar, innskráningin og hringur sem er í gangi þar til hann er vistaður. Síðan notar ekki auglýsinga- eða rakningarkökur.
Til hvers gögnin eru notuð
- Til að veita þjónustuna. Ráð, kylfuval, vegalengdir, Spara högg og æfingatillögur eru reiknuð úr þínum eigin gögnum. Þetta byggir á samningi okkar, það er skilmálunum.
- Til að kortleggja velli. Ef þú samþykkir eru lendingarstaðir upphafshögga notaðir nafnlaust til að teikna brautir og miðlínur. Þetta byggir á samþykki þínu.
- Í nafnlausa vallartölfræði. Ef þú samþykkir eru hringir þínir hluti af nafnlausri tölfræði fyrir vallareigendur (sjá næsta kafla). Þetta byggir á samþykki þínu.
- Til að verja síðuna gegn ruslskráningum og misnotkun. Þetta byggir á lögmætum hagsmunum okkar.
- Til að hafa samband við þig um aðganginn, breytingar á þjónustunni eða svar við fyrirspurn.
Samþykki geturðu afturkallað hvenær sem er í Stillingum eða með pósti til okkar. Það hefur ekki áhrif á vinnslu sem átti sér stað áður.
Vallareigendur
Golfvellir geta fengið aðgang að tölfræði um sinn eigin völl, til dæmis meðalskor á holu og hvar boltar lenda. Þar gildir þetta:
- Aðeins hringir kylfinga sem hafa samþykkt það eru teknir með.
- Tölfræðin er alltaf samantekin. Vallareigandi sér aldrei nöfn, netföng eða einstaka hringi.
- Hópur er aðeins sýndur ef hann nær að minnsta kosti fimm kylfingum, þannig að ekki sé hægt að þekkja einstakling úr hópnum. Kylfingar undir 18 ára eru í einum unglingahópi.
- Vallareigandi sér aðeins tölfræði síns eigin vallar.
Hverjir vinna með gögnin
Við seljum ekki gögnin þín og látum þau ekki af hendi nema eftirfarandi þjónustuaðilum, sem vinna með þau eingöngu fyrir okkar hönd, eða ef lög krefjast þess:
- Supabase hýsir gagnagrunninn og innskráninguna. Gagnagrunnurinn er hýstur í gagnaveri í Stokkhólmi í Svíþjóð, innan Evrópska efnahagssvæðisins.
- Cloudflare hýsir vefsíðuna og sér um vélmennavörnina Turnstile.
- Google, aðeins ef þú velur að skrá þig inn með Google.
FortySix Golf er ekki tengt Garmin, TrackMan eða GSPro. Gögn þaðan berast aðeins þegar þú hleður þeim upp sjálf(ur).
Persónuupplýsingar kunna að vera unnar í löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, meðal annars í Bandaríkjunum og Singapúr. Supabase segir að slíkir flutningar sem falla undir evrópskar persónuverndarreglur byggist á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Cloudflare og Google segjast styðjast við gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna þegar hann á við, og við stöðluð samningsákvæði í öðrum tilvikum eða þegar þörf krefur.
Hve lengi gögnin eru geymd
- Gögnin eru geymd meðan aðgangurinn þinn er virkur.
- Ef þú biður um að aðganginum sé eytt eru öll persónugögn þín fjarlægð innan 30 daga. Afrit gagnagrunnsins hverfa sjálfkrafa innan 7 daga þar á eftir.
- Nafnlaus kortagögn, til dæmis miðlína brautar sem dregin var af mörgum höggum, verða áfram hluti af vallarkortunum en eru ekki tengd þér.
- Fyrirspurnir og umsóknir eru geymdar í allt að 12 mánuði.
Öryggi
Gagnagrunnurinn er læstur þannig að hver kylfingur sér aðeins sín eigin gögn. Allar tengingar við síðuna eru dulkóðaðar. Enginn kerfisháttur er fullkomlega öruggur, en ef öryggisbrestur verður sem snertir gögnin þín látum við þig og Persónuvernd vita eins og lög gera ráð fyrir.
Réttindi þín
Samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga áttu rétt á að:
- fá að vita hvaða upplýsingar eru geymdar um þig og fá afrit af þeim,
- fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- láta eyða gögnunum þínum og aðganginum,
- fá gögnin afhent á tölvutæku formi til að flytja annað,
- andmæla vinnslu og afturkalla samþykki.
Sendu beiðni á support@fortysixgolf.com. Við svörum innan mánaðar. Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig farið er með gögnin þín geturðu kvartað til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, personuvernd.is.
Börn og ungmenni
Til að stofna aðgang þarftu að vera að minnsta kosti 13 ára, eins og lög nr. 90/2018 gera ráð fyrir. Fæðingarár er skyldureitur við skráningu.
Ef þú ert 13 til 17 ára gildir þetta:
- Slökkt er á kortlagningu og vallartölfræði. Aðeins þú getur kveikt á þeim, og þú getur slökkt aftur hvenær sem er.
- Við sendum þér engan markaðspóst.
- Þú getur ekki keypt áskrift nema með forráðamanni.
- Í nafnlausri vallartölfræði ertu í unglingahópi.
Á einföldu máli: við geymum golfið þitt svo síðan geti hjálpað þér. Enginn annar sér hringina þína. Ef þú vilt að við eyðum öllu, eða ef foreldri vill vita hvað er geymt, sendið okkur línu á support@fortysixgolf.com.
Breytingar
Stefnan getur breyst þegar þjónustan þróast, til dæmis þegar greiðslukerfi eða nýir eiginleikar bætast við. Við meiriháttar breytingar látum við þig vita á síðunni eða með tölvupósti áður en þær taka gildi.
SkilmálarPersónuverndUm FortySix Golf
© 2026 Haukur Hilmarsson