Gögnin

Hringirnir þínir á einum stað. Garmin-gögn eru sótt í tölvunni.

Garmin- og TrackMan-gögn eru sótt í tölvunni með FortySix-viðbótinni í Chrome eða Edge. Í símanum skráir þú hringi á síðunni Skrá hring.

Garmin og TrackMan: einn smellur Athuga…

  1. Settu upp viðbótina FortySix Golf – tenging í Chrome eða Edge (aðeins einu sinni). Leiðbeiningar með myndum ›
  2. Vertu innskráð(ur) á Garmin Connect og/eða TrackMan-vefinn (portal.trackmangolf.com) í sama vafra.
  3. Smelltu á FortySix-táknið efst í vafranum og veldu Senda Garmin-hringi eða Senda TrackMan-gögn.

TrackMan: hringir í hermi birtast á skorkortinu en teljast ekki með í forgjafargreiningunni. Æfingalotur á mottu og æfingasvæði fara á síðuna Hermir.

Hlaða upp Garmin-skrá

Hringirnir mínir

Kortlagning valla

Viltu hjálpa til við að kortleggja golfvelli? Þá eru hnit teiga, pinna og pútta úr Garmin-hringjunum þínum geymd læst og notuð nafnlaust til að finna flatir og teiga. Enginn annar sér hringina þína eða hvar þú varst. Þú getur slökkt hvenær sem er, og þá er hnitunum eytt.

Persónuvernd

Gögnin eru geymd í læstum gagnagrunni sem aðeins þú hefur aðgang að. Í hringjunum geymum við ekki nafnið þitt, Garmin-auðkenni eða GPS-hnit, heldur aðeins skor, pútt, brautir, kylfur og lengdir högga. Á völlum sem 46golf hefur kortlagt er líka geymt hve marga metra frá miðlínu brautarinnar hvert högg endaði (beinleiki). Höggpunktarnir sjálfir (hvar hvert högg var slegið og hvar holan var) eru líka geymdir, svo þú fáir kort af hringjunum og hitakort af völlunum. Aðeins þú sérð þá, og hægt er að slökkva á því í Stillingum. Ef þú leyfir kortlagningu valla eru hnit teiga, pinna og pútta geymd sér, aðeins sýnileg þér, og notuð nafnlaust til að kortleggja velli. Þú getur eytt hring hvenær sem er, og þá fara hnit hans líka.