FortySix Golf – tenging við Garmin og TrackMan (útgáfa 1.1.0)

Uppfærsla úr 1.0.0:
1. Opnaðu chrome://extensions (eða edge://extensions í Edge).
2. Finndu FortySix Golf og smelltu á hringlaga örina (Reload / Endurhlaða).
   Ef það virkar ekki: fjarlægðu viðbótina og settu hana upp aftur eins og lýst er hér fyrir neðan.

Uppsetning (aðeins einu sinni, Chrome eða Edge):
1. Opnaðu chrome://extensions (eða edge://extensions í Edge).
2. Kveiktu á „Developer mode“ (Forritarahamur) efst til hægri.
3. Smelltu á „Load unpacked“ og veldu möppuna 46golf_vidbot.
4. Smelltu á púslbitann efst í vafranum og festu FortySix Golf-táknið (nælan).

Notkun:
- Garmin: vertu innskráð(ur) á connect.garmin.com, smelltu á FortySix-táknið og „Senda Garmin-hringi“.
- TrackMan: vertu innskráð(ur) á portal.trackmangolf.com, smelltu á FortySix-táknið og „Senda TrackMan-gögn“.
- 46golf.com/innflutningur opnast og segir hvað kom inn.

Hvað er sótt úr TrackMan:
- Hringir í hermi (Course Play): skorkort, par, pútt og kylfur. Birtast á skorkortinu á Yfirliti
  en teljast ekki með í forgjafargreiningu Kúlunnar.
- Æfingar á mottu (Virtual Range) og á æfingasvæði (Range): fara á síðuna Hermir sem æfingahögg.
- Högg úr hringjum í hermi: fara líka á Hermi, en í sér flokk svo þau blandist ekki æfingahöggum.

Gott að vita:
- Allt að 20 Garmin-hringir eða 40 TrackMan-atriði eru sótt í einu. Smelltu aftur til að sækja fleiri.
- Gögnin fara beint á 46golf.com í þínum vafra, hvergi annað.
- Nafn og notandaauðkenni eru ekki geymd.
- Höggpunktar Garmin-hringja (hvar hvert högg var slegið og hvar holan var) eru geymdir á þínu svæði. Aðeins þú sérð þá og hægt er að slökkva á því í Stillingum á 46golf.com.
- Viðbótin notar innri slóðir Garmin Connect og TrackMan sem geta breyst án fyrirvara.
